Þegar við lærum hefðbundna skólamálfræði erum við ekki að læra reglurnar frá grunni, heldur að eignast orðaforða og hugtök eins og fallorð, sagnorð, kyn og tölu til að geta lýst og rannsakað kerfið sem við beitum nú þegar rétt á hverjum degi.
Þegar málfræðingar rannsaka orð skoða þeir ekki eingöngu merkingu þeirra, heldur einnig hvaða orð standa í kringum þau og hvort eða hvernig þau breytast og beygjast við notkun.
Stofn orðs er sá kjarni sem helst óbreyttur þegar orðið er beygt og lagað að ólíkum setningum, líkt og traustur trjástofn sem heldur uppi greinum og laufi.
Þegar við greinum tölu í íslensku erum við að skoða breytingar á orði þegar um er að ræða einn stakan hlut (hestur) eða fleiri en einn (hestar) Þegar við rýnum í málfræðilegt kyn þá erum við að skoða kyn nafnorðs og áhrif þess á myndir annarra orða standa með þeim eða í stað þeirra.
Flokkur sagnorða telst til opinna orðflokka vegna þess að nýjar sagnir bætast stöðugt við tungumálið og mörg af skemmtilegri nýjum orðum tungumálsins eru einmitt sagnorð.
Af hverju eiga börn það til að beygja sterkar sagnir veikt við máltöku („ég hlaupaði“) áður en þau læra hljóðskiptin og fara að segja „ég hljóp“?
Fallbeyging felst í því að laga form fallorða að setningagerðinni með því að setja þau í föll.
Persónufornöfn stýra sjónarhorni frásagnar og breyta allri upplifun af henni þar sem fyrsta persóna lítur inn á við til að miðla eigin reynslu, önnur persóna „bendir með orðum“ á viðmælandann og í þriðju persónu stendur sögumaður fyrir utan atburðina og lýsir því sem fyrir augu ber.
Atviksorð eru óbeygjaleg sem þýðir að þau breytast aldrei. Þótt atviksorð séu lýsandi í eðli sínu greinast þau t.d. skýrt frá lýsingarorðum sem beygjast eftir kyni og tölu og stigbreytast.
Forsetningar eru óbeygjanleg orð sem beygjast ekki líkt og atviksorð. Helsta aðalsmerki forsetninga er að þær hafa kraft til að stýra falli annarra orða.
Nafnorð eru stór flokkur fallorða sem við notum til að nefna hluti, fólk, lífverur, staði og hugmyndir.
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, fólks, hugtaka og athafna og veita nákvæmari upplýsingar sem koma í veg fyrir misskilning í samskiptum. Þótt lýsingarorð fallbeygist og breytist eftir kyni og tölu er það stigbreyting sem gerir þau málfræðilega einstök og skilur þau frá öðrum orðflokkum.
Fornöfn fallbeygjast og hafa bæði kyn og tölu líkt og önnur fallorð, en greinast skýrt frá nafnorðum (þau taka ekki greini) og lýsingarorðum (þau stigbreytast ekki).
Hættir sagna sýna afstöðu málnotandans til þess sem fram kemur í setningunni og gefa til kynna vissu, óvissu, möguleika, skipun eða óskir.